Það er betra að vera kóngur í koti sínu en þræll í konungsgarði

Tökum út refsinguna strax af Icesave með því að hafna samningnum

Það er mikið betra þó allt fari í Kaldakol. Það er allt í voða hvort sem er og þó það verði eitthvað verra í nokkur ár skiptir ekki máli. við höfum hita á kofunum okkar og nóg að borða. En á móti höldum við reisn okkar og látum ekki kúga okkur.

Alþingismenn!  sýnið kjark og manndóm og hafnið þessu embættisbulli og þjóðin mun standa með ykkur á hverju sem dynur.


mbl.is Hærri skattar og veik króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Það er nú einhver misskilningur að höfnun samningsins leyfi Íslendingum að halda reisn sinni - þá fyrst yrðum við álitinn ruslaralýður upp til hópa.

Við værum þá í þeirri stöðu að stjórnendur ábyrgðust allar innistæður í íslenskum bönkum á Íslandi, en ekki í útibúum sömu banka erlendis - viðværum að þverbrjóta EES samninginn með þannig mismunun.

Ef við ætlum að tryggja innistæður á Íslandi verðum við að tryggja þær erlendis líka - það er ekkert undanfæri.   Það sem má hins vegar deila um er hvort vextirnir séu ásættanlegir og annað slíkt...en skuldbindingin er staðreynd.

Púkinn, 26.6.2009 kl. 11:59

2 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Verðgildi Krónunnar hefur hrunið sem þýðir sparifjáreigendur hér afa tapaða 50% af verðgildi því sem þeir áttu og svo ætlum við að borga erlendum gengistryggt. Það kalla ég mismunun

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 26.6.2009 kl. 13:18

3 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Með þessu er bara verið að fresta vandanum í staðin fyrir að taka á honum. Það er alveg klárt fyrir sæmilega reikningskláran að sjá að það er alveg útilokað að við getum staðið við þessar skuldbindingar

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 26.6.2009 kl. 13:27

4 Smámynd: Haraldur Hansson

Púki, að hafna ríkisábyrgð á IceSave gerir okkur ekki að ruslaralýð.
Það þýðir ekki að menn ætli ekki að borga skuldir sínar.
Það þýðir ekki að menn hafni því að semja um málin.

Ef menn hafna ríkisábyrgð með skynsamlegum rökum og óskum um að samningurinn verði tekinn til endurskoðunar, þá er ekkert rangt við það. Ákvæðin um vexti, breyttar forsendur eru umdeilanleg eins og fleiri greinar. Það þjónar engum tilgangi, hvorki fyrir okkur, Breta né Hollendinga, að semja um greiðslur sem við getum aldrei staðið undir.

Er þetta ekki fyrst um fremst spurning um skynsemi? Og kannski smá sanngirni.

Haraldur Hansson, 26.6.2009 kl. 14:01

5 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ég er þér sammála Gunnar. Komi það sem koma vill. Ég held samt eins og nafni minn Hansson að það verði einfaldlega sest niður að nýju. Ef betur tekst til í mönnum samninganefndar og ef samningnefndin fær að standa upp og fara, ef bretar og hollendingar hvika ekki, þá og aðeins þá er hægt að koma skynseminni að. Ég segi samt ef við verðum að borga þá ekki meira en 12 milljarða í 5 ár. Í íslenskum krónum þá líka.

Haraldur Baldursson, 26.6.2009 kl. 15:17

6 Smámynd: Finnur Bárðarson

Við erum álitin ruslaralýður nú þegar. En hvað um það ég óttast það hvað gerist ef við segjum nei. Ekki vegna þess að ég sé hrifinn af drullumalli Bjögganna. Hverjir eru valkostir. Spyr sá sem ekki veit.

Finnur Bárðarson, 27.6.2009 kl. 17:11

7 identicon

Í Icesave málunum erum við íslendingar sem þjóð í sömu stöðu og hinn almenni lántakandi sem einstaklingur gagnvart bönkununum hér á landi.

Við höfum ( og höfðum ) ekkert með skilmálana að gera, við erum réttlausir og okkur ber að borga. Svo einfalt er það.

Svona líta okkar eigin fjármálafyrirtæki og yfirvöld á okkur og er nema von að aðrir geri það líka ?

kht (IP-tala skráð) 1.7.2009 kl. 11:44

8 identicon

Bendi fólki á http://en.wikipedia.org/wiki/Clausula_rebus_sic_stantibus

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 23:04

9 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Tek undir fyrirsögnina heilshugar.

Þjóðir hems virða EKKI þýlyndar þjóðir.Herraþjóðir virða ekki þá sem ganga erinda kúgarana/Quslingana (Þjóðverjar fyrirlitu hann af ástríðu fyrir föðurlandssvik)

Þetta skíthrædda lyddulið er brjóstumkennanlegt.

Bjarni Kjartansson, 7.8.2009 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband